Tuesday, August 23, 2005

Skolinn

Jæja, ætli allir séu ekki bara byrjaðir í skólanum aftur =) og býst ég við að flest allir séu bara nokkuð sáttir með það, ég er svo sátt með að lenda með krökkunum sem að voru með mér í bekk á síðasta ári aftur í bekk að það hálfa væri nóg. En þetta ár verður ekkert síðra heldur en árið áður, ég bara veit það ef ekki bara betra og verð ég að segja að það verður erfitt að toppa það, meina mér er búið að hlakka til að koma í skólann mest allt sumarið og langaði ekkert að fara í sumarfrí þegar að því kom, en ég er núna svo fegin að það er búið og ég get farið að fara aftur í skólann, ekki það að mér finnist eitthvað rosalega gaman að læra, en bara andinn í skólanum og krakkarnir eru bara æðislegir og það gerir námið allt skemmtilegt, ég ætla bara að vona að allir séu jafn sáttir með þetta og ég.. =)
Ég vil samt segja að við stelpurnar vorum ekki beint að standa okkur í þessari heimasíðu í sumar =( hehe, enda ekki beint hægt að segja að við séum einhverjir rithöfundar þó að Helena ástin sé að standa sig mjög vel og Stína, hvar ert þú? ég hélt yfir þér ræðu síðast yfir að láta þig hverfa svona lengi og vil ég ALDREI að það gerist aftur, eða bara við einhverja af okkur.. En nenni ekki að bulla mikið meira þar sem að ég veit ekki einu sinni hvort að einhverjir séu að lesa þetta :)
Góða nótt og sofið vel ;)

Wednesday, August 10, 2005

Sumarferðir

Hiló, núna er sumarið að fara að enda, ég get ekki sagt að þetta hafi verið mikið sumar hér á Íslandi, enda ætla ég að flýja í sólina á morgun til Rimini með Bjögga mínum. Og Stína er að flýja í dag til Mallorca í 3 heilar vikur, síðan er Erna að fara til Danmerkur eftir viku og Hugrún til Benidorm. Bíbí dansarinn okkar er núna í London og verður þar í 2 vikur. Hún Klara kisi ekkert búin að vera eiginlega á landinu í sumar, hún byrjaði á því að fara í enskuskóla í 3 vikur til Englands með henni Bryndísi. Síðan kom hún til Ísland að kæla sig í nokkra daga áður en hún fór til Kanarí. Guðrún Mist flúði nú bara kaldasta partin af árinu eða hún var í Californiu frá janúar - júní og kom vel tönuð heim. Áslaug fór til Swiss í júní og hlýjaði sér þar í 2 vikur. En núna er mikið í gangi, svo margt sem að ég þarf að gera áður en að ég fer út **úff hlakka svo til** síðan leið og ég kem heim þá er mamma og Ívar að gifta sig hérna í garðinum og menningarnótt um kvöldið svo á mánudeginum hefst skólinn. En ég mæli með að þið kíkjið á nýju síðuna hans Elíasar hún er alveg frábær, skemmtilegt að lesa það sem hann er að tjá sig um www.thethundercat.blogspot.com & ef ykkur leiðist að kíkja á þá www.leikjanet.is en allanvegna ég er farin með Mömmu og finna sér giftingarkjól.

Friday, July 22, 2005

Labbitúr

úff hvað ég er þreytt í fótunum, ég er búin að vera að labba í allandag eða þ.e.a.s. frá klukkan 1. En þá tók ég strætó í vesturbæinn að hitta GmG og Bryndísi en við fórum smá rölt og svo join-aði íris okkur og við löbbuðum útá nes að heimsækja ernu í vinnuna og athuga hvort við fyndum okkur eitthvað girnilegt í bakarínu en það var allt eitthvað skrítið svo að við skruppum yfir götuna í Hagkaup og fundum ýmislegt sniðugt þar. Síðan röltum við í miðbæinn og pikkuðum Bíbí upp og ákváðum svo að fara út að borða á næstu grösum. Geðveikur matur, og svo hollur fengum fullt af miklum vægum næringarefnum og svoleiðis :D eftir matinn fórum við á KR - Val :S og valur skoraði sigur markið á seinustu 40 sek, frekar mikill bömmer (2-1). En eftir leikinn fórum ég, Guðrún, Bryndís, Bíbí, Kári og Íris heim til GMG að kúra í smá stund síðan tók við heimferðinn, örugglega ein erfiðasta strætóferð sem ég hef farið var svo þreytt. En svo var ég bara að hendast inn um hurðina núna... en á morgun ætlum við kannski að kíkja á "ströndina" ef veðrið leyfir hjúkk ***pukurrr...* kveðja helene

Saturday, July 16, 2005

jæja

já í gær var einn af föstudögum sumarsins. Dagurinn byrjaði með því að ég og Sunna vorum að systrast þ.e.a.s. byrjuðum á því að rölta laugarveginn og enduðum á flóamarkaði þar sem að ég keypti mér geðveika skó og Sunna keypti sér einn flottasta kjól sem ég hef séð og svo þegar við litum á miðann þá er þetta kjóll frá Saks 5ft avenue! En eftir laugarvegsröltið héldum við í kringluna þar sem við áttum báðar inneignarnótu í vero moda og náðum að verzla okkur smá í viðbót þar. Svo enduðum við í bónus til að kaupa í matinn af því að við erum einar heima. Síðan komum við heim og elduðum okkur geðveikan kjúkling með piparostasósu, kryddbrauði og pasta... pukurrrr*** Síðum um kvöldið fór ég til GMG og hitti stelpurnar auk nokkrir aðrir sem komu, það var heavy nice að sitja inní stofu með kveikt á arininum og bara að spjalla. Þannig var 6 seinasti föstudagurinn áður en skólinn byrjar. *** Það er svo skrítið stundum heldur maður að hlutir verða eins og þeir eru alltaf en svo bara breytast þeir og maður getur ekkert af því gert þóttt maður vilji halda í þá eins og þeir voru... úff þetta er orðið svolítið djúp svo að ég ætla ekki að tjá mig meira en þanngað til næst hafiði það gott ! :)

Thursday, July 07, 2005

F&H

halló :) í dag var seinasti dagurinn minn í fjölskyldu & húsdýragarðinum, en ég mun samt bókað kíkja í heimsókn nokkrum sinnum og heilsa uppá á starfskraftinn þarna, fá mér besta kakó í heimi og heilsa uppá stelpurnar á kaffihúsinu í leiðinni. En það er svonna pæling að fara í útlegu ég morgun, bara samt ef veður leyfir. En á morgun er eiginlega fyrsti frídagurinn minn í langan tíma eða þ.e.a.s. er samt að fara að vinna í blend frá 5-7 en það eru nú bara 2 klukkutímar. Ef ég fer ekki í útleguna ætla ég að grilla með stelpunum og kannski kíkja á smá djamm. Annaðhvort djamm eða útilega allt ræðst á morgun. En allanvegana þegar ég var búin með seinasta daginn í garðinum fór ég heim í sturtu og svonna. síðan kom Bjöggi og sótti mig með litla bróður sinn líka (hann er mesta krútt í heimi) og við komum við á dominos og sóttum okkur pizzu. Þegar við vorum orðin pakksödd fórum við í viedeo heima og sóttum okkur spólu og meðan bjöggi var að velja fór ég og litli bróðir hans (Eyþór) í "álfheimabúðina" í skeifunni ég fékk mér ís og jarðaber :P og hann valdi sér grænt krap... frekar frumlegt.. haha en núna er ég bara í tölvunni afþví að ég er svo hrædd við myndina sem við leigðum... Darknes falls.... Bjöggi og pabbi hans eru frammi að vera hugrakkir að horfa á hana... ég gafst upp í miðri mynd þegar öll spennan var að byrja.... litla hjartað mitt þolir ekki svonna.... En ég hlakka svo til að hitta næst stelpurnar, núna erum við allar saman á klakanum.

Thursday, June 30, 2005

vatnsmelóna

já ég byrjaði daginn á því að rölta útí Hagkaup með Sunnsí systur og kaupa mér risastóra vatnsmelónu *nammm...* svo kom Erna til mín og við vorum eitthvað að pukrast, erum síðan kannski að fara á Duran Duran tónleikana á eftir með Bíbí og Hugrúnu, veltur allt hvort það séu auka miðar :) *vona það*. En í gær var ég líka í fríi, svo að ég og íris fórum á laugarveginn að finna velkomin heim & afmælisgjöf handa Guðrúnu Mist, það gekk mjög vel, enda stelpan með galopinn smekk. Síðan gerðum við okkur lítið fyrir og bökuðum heilt tonn af rice crispies handa dúllunni okkar. Svo um 8 leitið þegar allt var tilbúið héldum við til gmg. Það var ekkert smá gaman að hitta hana, hún skemmti sér svo vel úti. Ég og íris fengum síðan geðveikar afmælis kökur og svo vorum við bara að spurja gmg útí í eitt. Seinna um kvöldið kom svo Kári líka og við vorum eitthvað að fíflast með naglalökk. Svo endaði kvöldið á því að Bjöggi sótti mig um 1 leiið til gmg og ég sofnaði strax og höfuðið snerti koddan.

Monday, June 27, 2005

GUÐRÚN MIST GUNNARSDÓTTIR

Guðrún Mist Gunnarsdóttir, ástin okkar allra er að koma heim til Íslands á morgun.. En ég er úti og fæ ekki að sjá hana fyrr en 1.júlí, það er ekki fyndið hversu mikið ég er búin að sakna þessa kvikindis því að hún er ekkert nema allt það æðislega sem að manneskja getur verið. Við erum allar búnar að fylgjast með hvernig hennar líf hefur verið síðustu 6 mánuðina og er ég eiginlega alveg viss um að hún hafi verið eins ánægð með þessa mánuði og hver mús með sinn eðal ost.
LUV YA.. og kem heim sem fyrst og fæ að hitta þig á laugardeginum og þú færð ekkert að ráða um það.. ;)
Kossar og knús og bíð SPENNT eftir að fá að hitta þig, þó að ég viti að ein manneskja er ekki búin að sitja á rassinum allan þennan tíma því að þú ert búin að vera úti. En bara svo að hann viti það þá verður hann að panta tíma í gegnum mig til þess að fá að hitta þig og ég er mjög nísk á þann tíma... en hlakka til að hitta þig ástin mín og veit að hinar stelpurnar gera það líka...
Eftir þetta færðu ekki að fara aftur til útlanda nema ði fylgd okkar, og kannski út á land yfir helgi...